IS Sértryggð skuldabréf VTR

Sjóðurinn hentar þeim sem vilja ávaxta sparnað í þrjú ár eða lengur í sjóði þar sem fjárfest er í verðtryggðum sértryggðum skuldabréfum. Meðallíftími skuldabréfa sjóðsins getur verið á bilinu 0-14 ár og þýðir það að verð bréfa í sjóðnum geta sveiflast mikið við breytingar á ávöxtunarkröfu bréfanna á markaði.

Kaupa í sjóði

Hér getur þú keypt beint í sjóði eða skráð þig í áskrift

Nafnávöxtun

Fjárfestingartími

Sveiflur í ávöxtun

af 7

Mælikvarði á áhættu og sveiflur í ávöxtun

Tegund
Stofnár
2015
Grunnmynt
ISK
Eignasamsetning
  • 4,2% Laust fé
  • 23,9% Verðtryggð ríkisbréf
  • 19,1% Arion banki
  • 19,2% Landsbankinn
  • 33,6% Íslandsbanki

Síðast breytt: 1.3.2024

Markmið

Langtíma ávöxtun með fjárfestingum í verðtryggðum sértryggðum skuldabréfum, ríkisskuldabréfum og innlánum fjármálafyrirtækja.

Fyrir hvern er sjóðurinn?

Sjóðurinn hentar fjárfestum sem vilja ávaxta fé í þrjú ár eða lengur og þola verðsveiflur. Mælt er með því að sjóðurinn sé hluti af stærra verðbréfasafni. Áætlaður meðallíftími eigna sjóðsins er opinn. Það er mat sjóðsstjóra hverju sinni hvort hagkvæmt er að fjárfesta í skuldabréfum með langan eða stuttan líftíma.

Upplýsingablað

Gengisþróun


Þóknanir og viðskipta­pantanir


Lágmarkskaup
kr. 10.000
Lágmarkskaup í áskrift
kr. 5.000
Kostnaður við kaup
1%
Afsláttur í netbanka og appi
25%
Afsláttur í áskrift
50%
Árleg umsjónarlaun
0,9%
Afgreiðslugjald
kr. 1.000
Afsláttur í netbanka og appi
100%
Uppgjörstími
2 viðsk.dagar (T+2)
Viðmiðunartími
kl. 15:00

Frekari upplýsingar um sjóðinn


Rekstraraðili
Íslandssjóðir hf.
Vörsluaðili
Íslandsbanki hf.
Sjóðsstjórar
Ingólfur S. Kristjánsson Helga Óskarsdóttir
Lykilupplýsingar fyrir fjárfesta
PDF
Upplýsingablað
PDF
Ávöxtunarblað sjóða
PDF
Útboðslýsing sjóðsins
PDF
Ársreikningur Íslandssjóða
PDF
Verðskrá verðbréfaþjónustu
PDF
Kostnaðarhandbók
PDF

Fyrir­varar


Almennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimildir og notkun afleiðna. Fjárfestingarsjóðir hafa víðtækari fjárfestingarheimildir en verðbréfasjóðir og geta því verið áhættusamari fjárfesting. Upplýsingar um sjóðina eru fengnar frá Íslandssjóðum hf., rekstrarfélagi sjóðanna sem er dótturfélag Íslandsbanka hf.

Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem eru taldar áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast nákvæmni eða réttmæti þeirra. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.

Gengisþróun og ávöxtun

Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.